Eimskipshöllin, nýtt fjölnota íþróttahús í Eyjum - Nafnbót eða óbót ?
8.12.2010 | 20:44
Allt er falt fyrir rétta upphæð hefur oft verið sagt. Nú hefur ÍBV íþróttafélag, sem fyrr hafði óskað eftir leyfi hjá umhverfissviði þess efnis að selja nafn nýrrar fjölnota íþróttahallar í Vestmannaeyjum í fjáröflunaskyni fyrir félagið til Eimskip. Þessu fylgja ákveðin skilyrði en ágóðanum skal varið til uppbyggingu barna og unglinga hjá félaginu og er samningurinn til 5 ára. Tryggvi Már framkvæmdastjóri ÍBV talar um að þetta sé liður sem hafi kostað félagið 10 milljónir á árinu og þá fer ég að velta fyrir mér. Er féð sem nú fæst fyrir sölu nafnsins viðbót við áður ákveðna upphæð til þessara mála eða þýðir þetta að þeir minnka útgjöldin í þennan lið og nota féð í raun annarsstaðar ? Vonandi bætir þetta bara þjónustuna við börn og unglinga sem að sjálfsögðu eru einnig að fá mjög góða viðbót með húsinu sem slíku.
Það þarf ekki að koma neinum á óvart sú staðreynd að íþróttafélögum reynist sífellt erfiðara og erfiðara að fjármagna starfsemi sína og afla tekna. Þetta er því leið sem félög í landinu og í raun um heim allann hafa farið til að skapa aukatekjur. Þetta er þannig séð hin fínasta fjáröflun því hún ólíkt flestum öðrum fjáröflunum íþróttafélaga, allveg óháð sjálfboðavinnu sem þekkist m.a. við að ganga í hús, hringja eða vinna einhverja vinnu til að spara félaginu útgjöld sbr.uppbyggingu mannvirkja í Herjólfsdal fyrir þjóðhátíð. Það reynist sífellt erfiðara að fá sjálfboðaliða í störf fyrir íþróttafélög og sannar síðasta útspil manna með föst mannvirki í Herjólfsdal þetta, enda voru rök fyrir þeim mannvirkjum að erfitt væri að manna vinnu við smíðar fyrir þjóðhátíð. En persónulega líkar mér ekkert við þetta nafn Eimskipshöllin, frekar en mér þótti fallegt að Valur skildi selja Vodafone nafnið á sinni höll sem og knattspyrnuvellinum. Hestamenn á Akureyri fóru reyndar þá leið að setja erlent nafn reiðhöll sína í skiptum fyrir reihnakka og hljómflutningstæki og sýnir það að menn geta tekið aðeins meira niðurfyrir sig en ÍBV menn gerðu í þessum samningi. En Egilshöllin er styrkt af Egils er það ekki ? Það nafn fer þeirri höll vel enda á það sér skemmtilega tilvísun í Íslendingasögunar og hæfir vel stóru og miklu húsi. Hefðu ekki allir verið sáttari við að höllin hefði verið kölluð Hásteinshöllin eða kanski Klöppin, Kletturinn eða eitthvað sem rýmar við nafngiftir sem önnur íþróttahús hafa fengið á síðustu árum, Kórinn, Fífann, Risinn, Boginn eða bara einfalt líkt og Akraneshöllin, Reykjaneshöllin, Fjarðarbyggðarhöllin sem dæmi séu tekin. En reynum að líta málið jákvæðum augum og látum þetta nafn ekki skemma gleðina sem fylgir húsinu.
Köllum þetta bara Hástein, Hásteinshöll eða Hásteinshelming (þetta er bara helmingurinn af höllinni er það ekki ? ) eða hvaða því nafni við viljum kalla þetta og vonum að úrræðagóðir menn sem búið geta til pening á þennan hátt fyrir íþróttalífið geti fundið álíka styrktaraðila til að fjármagna stúkuna sem svo sannarlega er kominn tími á og fé hefur vantað til að byggja í svo mörg ár. Skömmin að vera á sífellum undanþágum fara að verða kjánalegar.
Að lokum vill ég óska Vestmannaeyjabæ, Íþróttafélögunum, eldriborgurunum, flugukastæfingarfólki, sýningaraðilum komandi sýninga og öllum Vestmannaeyjingum til hamingju með húsið. Megi það styrkja uppbyggingu íþróttalífs í Vestmannaeyjum og skapa óteljandi tækifæri í framtíðinni.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Erfitt að horfa framhjá honum í vali Íþróttamanns ársins
29.9.2010 | 19:29
Það verður erfitt fyrir íþróttafréttamenn að horfa framhjá Gunnari þetta árið í vali á íþróttamanni ársins líkt og gert var síðasta ár. En reglur keppninar bjóða reynda uppá það að horfa framhjá honum en krafan er orðin enn meiri en hún var í síðasta kjöri. Íþróttafréttamenn segja af þessu fréttir og ættu því að geta valið hann.... Skora á íþróttafréttamenn að kjósa rétt þetta árið..
Gunnar Nelson á heimslistann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
CLARK - WHATEVER
11.5.2010 | 23:55
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmvörðuháls, skýrlsa, Eyjafjallajökull
20.4.2010 | 10:38
Ég var nú ekki hár í loftinu þegar eldgosið á Heimaey varð og satt besta að segja var ég ekki fæddur. En það gos er það gos sem hefur haft hvað mest áhrif á mig á minni ævi. Ég, alinn upp í Vestmannaeyjum hef frá því ég man eftir mér haft mikinn áhuga á sögum frá þeim tíma og hef fylgst náið með öllu sem viðkemur því gosi, hvort sem er í lestri bóka um gosið eða að skoða gamlar myndir.
Allt frá því að ég fæddist hafa nokkur eldgos orðið á Íslandi og hafa þau alltaf verið mér fjarlægri en gosið í Eyjum sem ég þó aldrei upplifði. Ég man kannski helst eftir að hafa horft á Heklugosið árið 1991 og man ég vel hvar ég var þegar það byrjaði og svo man ég eftir gosinu í Grímsvötnum árið 1996 sem leiddi til þess að í jökulhlaupi yfir Skeiðarássand var brúnni sópað burtu. Önnur gos eru mér lítið meira en bara lítil áminning um að ég bý á Íslandi.
Nú er komið að því að ég upplifi í fyrsta skipti talsvert hamfaragos og fylgist náið með um leið í skjóli frá sjónvarps- og tölvuskjánum. Þetta eru tvö mögnuð gos á sinn hátt sem hafa orðið þess valdur að fólk hefur þurft jafnt að næturlagi og að degi til að kveðja heimili sín í óvissu hvenær leyfi fengist til að snúa til baka til að huga að skepnunum sem þekkja ekki annað en klukku náttúrunnar og skipta engu um hvað er að gerast í pólitík eða trúarbrögðum og hvað þá hjá stofnun Almannavarna á Íslandi.
Gosið við Fimmvörðuháls snéri heldur betur öllu á hvolf á Íslandi. Fólk talaði um hagnað vegna ferðamanna og ólíklegustu menn fóru að mála skilti sem á stóð ELDGOSAFERÐIR. Hreint gullæði greip um sig í miðri kreppunni. Uppá jöklum fóru að sjást snjósleðar sem margir hafa staðið óhreyfðir í áratug og jeppakallar sem ekki voru allveg búnir að græja jeppann fyrir sumarið ruku af stað og þurftu margir hverjir að bíta í það súra epli að kanski hefði verið betra eftir allt saman að klára að græja jeppann og æða svo af stað. Gosið á Fimmvörðuhálsi var spennandi túristagos líkt og það var nefnt og ekkert ólíkt þeim gosum sem orðið hafa á minni ævi, lítil gos með takmörkuð áhrif á daglegt líf. Almenning þyrsti í að skoða gosið og pantaði sér þyrluflug líkt og árið 2007 væri komið aftur.
En líkt og gosið á Fimmvörðuhálsi rauf eilíft maus fréttamanna um Icesafe leið ekki nema rétt 2 tímar frá því að skýrsla rannsóknarnefndar sá dagsins ljós og fréttir þess efnis að gosinu við Fimmvörðuháls væri lokið, Nú hafði þessi skýrsla þaggað í náttúrunni. Þvílík og önnur eins skýrsla hefur aldrei áður komið út. Þegar þarna var komið við sögu sá ég hve lík þessi atburðarás væri orðin leiknum um stein, pappír og skæri sem menn grípa oft til þegar á að útkljá ágreining eða vandamál. Ég sagði frá þessari hugljómun minni í Facebook stöðufærslu við fréttina um lok eldgosins við Fimmvörðuháls og sagði að þrenning þessi yrði fullkomuð ef/þegar nýtt gos hæfist sem myndi þagga niður í skýrsluumræðunni. Það gerðist strax um kvöldið og get ég því sagt að
Steinn = Gosið í Eyjafjallajökli,
Pappír = Icesave og Hrunskýrlsan, og að lokum
Skæri = Gosið við Fimmvörðuháls
því hvað sem þessu stórmagnaða gosið í Eyjafjallajökli líður þá komum við aftur að þessari skýrslu fyrir rest hvort sem okkur líkar betur eða verr. Þetta kallar að sjálfsögðu á ný merki til að nota í leiknum og fylgja þau að sjálfsögðu með hér.
Þetta magnaða gos í Eyjafjallajökli er stórfenglegt að sjá á myndum líkt og Heimaeyjargosið var 1973 í öllum þeim stórfenglegu myndum sem lifa nú á póstkortum sem sýna í raun bara glansmynd hræðilegs eldgos sem fékk alla íbúa Vestmannaeyja til að kveðja heimili sín í óvissu um hvenær eða hvort þau nokkurntímann snéru aftur. En ég öfunda ekki þá sem verða hvað mest fyrir barðinu á þessum eldgosum, íbúar í sveitunum, dýrin og jafnvel fólk sem þetta snertir á einhvern hátt vegna flugbanns víðsvegar um Evrópu. En við getum prísað okkur sæl með að manntjón hefur ekki orðið af gosunum sjálfum, þó að sorglegur atburður hafi orðið tengdur því að fólk hafi ætlað að fara að skoða illa undirbúið, sem hlýtur að minna okkur ennfrekar á að fara varlega og skipuleggja okkur vel. Ef allt fer á versta veg eigum við frábærar björgunarsveitir sem sýna það reglulega á ári hverju að þær eru okkur nauðsynlegar og það sem gleymist of eru þær háðar stuðningi okkar.
En nú höfum við verið slegin með óhugnarlegu eldgosi sem aðeins er þó brotabrot af því sem Kötlugos verður þegar það nú byrjar. Þetta má teljast sem general prufa fyrir það gos og kannski á sinn hátt ákveðin æfing í viðbrögðum landsins og í raun alls heimsins við þvílíkum náttúruhamförum. Að því sögðu vill ég benda á þá gríðarlegu vinnu sem Almannavarnir, RÚV, lögregla og björgunarsveitir landsins hafa unnið og bið fólk að hafa það í huga um næstu áramót þegar kaupa á flugelda um næstu áramót af björgunarsveitunum og borga nefskatt sinn til Rúv með glöðu geði í stað þess að fitja uppá trýnið. Það er við hæfi að sýna þakklæti okkar sem heima sitjum og horfum á allar fallegu myndirnar, óhugnarlegu myndirnar, skemmtilegu fréttirnar og hræðilegu fréttirnar af öllu þessu tengdu í skjóli frá sjónvarpsskjá eða tölvuskjá okkar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Besti Benchwarmer Íslendinga... ennþá
21.2.2010 | 19:30
Eiður á bekknum hjá Tottenham
Ég er nú hræddur að þessi fyrirsögn á fréttinni sé aðeins ein af mörgum sem á eftir að birtast á síðum mbl.is hér eftir um knattspyrnumanninn Eið Smára og veru hans hjá Tottenham.
Það virðist vera að Eiður hafi valið frekar að verma bekkinn í óákveðinn tíma og sanna sig hægt og rólega í stað þess að fara í lið þar sem hann myndi detta strax inní liðið og jafnvel þá ekki náð að sanna sig með tilheyrandi leiðindum. Það er vitað mál að ef þú einusinni missir fast sæti þitt í liðinu þá er erfðara að vinna sig inní það aftur í stað þess að byrja á bekknum og vinna sig inní byrjunarlið og halda þeirri stöðu. (heimildir sem ég hef um það mál er eingöngu skoðun sem ég hef haft mjög lengi en byggi það ekki á neinum einstökum rannsóknum, kanski bara bull í mér.)
En ef að enski boltinn er akkúrat það sem Eiður kann best við þá á hann eftir að standa sig þarna.
Eiður á bekknum hjá Tottenham | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Skemmt fræ þarna - myndir
27.1.2010 | 23:03
Það þyrfti að fylgja með úrskurði dómnefndar í hverju nýjungin með bíl sem getur ekið á hlið felist.
Fyrir mér hljómar þetta sem allgömul hugmynd og prótótýpur af slíkum bílum verið oft gerðar. Ég heyrði fyrst af svona bíl fyrir 20 árum síðan þegar Ómar Ragnarsson sýndi þannig bíl í einhverjum þætti (nema það hafi verið 1.april gapp sjónvarpsins það árið).
Citroen sem kynnti þetta á áttunda áratugnum en kanski voru jafnvel einverjir komnir fyrir það.
Árið 2008 kynnti NASA hugmynd að bíl sem gæti gert þetta. Nissan hefur kynnt hugmyndabíl sem hefur þennan eiginleika en hann er hér að neðan.
NISSAN PIVO 2 er hugmyndabíll sem Nissan kynnti árið 2007. Skildi reyndar aldrei með þann bíl afhverju hann þurfti að líkjast einhverju ódýru leikfangi og stjórnklefinn snýst líka í hring.
En kanski er ég bara ekki að skilja þessi verðlaun og vona ég þá bara að einhver fræði mig um þetta.
Hin hugmyndin á að mínu mati þetta fyllilega skilið og skömm að deila þurfi milljóninni í tvennt.
Hliðarbíll og loftræsting | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Netorðin fimm frá SAFT
13.1.2010 | 10:22
Eftirfarandi er tekið af heimasíðu SAFT www.saft.is og er holl lesning fyrir alla aðila og þá kanski ekki síður Hrannar B. Arnarson aðalega þá liðir fjögur og fimm
1. Allt sem þú gerir á Netinu endurspeglar hver þú ert
2. Komdu fram við aðra eins og þú vilt láta koma fram við þig
3. Ekki taka þátt í neinu sem þú veist ekki hvað er
4. Mundu að efni sem þú setur á Netið er öllum opið, alltaf
5. Þú berð ábyrgð á því sem þú segir og gerir á Netinu
- - -
1. Allt sem þú gerir á Netinu endurspeglar hver þú ert
Allt sem við gerum og segjum er endurspeglun á því hvernig við hugsum og hvað við sjáum í kring um okkur. Þó aðrir þekki okkur ekki vitum við alltaf sjálf hver við erum. Stundum veljum við að koma fram á Netinu undir dulnefni eða nafnlaust. Það getur stundum verið nauðsynlegt og stundum skemmtilegt, en við getum ekki verið nafnlaus eða undir dulnefni gagnvart okkur sjálfum. Þess vegna viljum við vera sátt við allt sem við gerum og geta litið í eigin barm án þess að líða illa.
2. Komdu fram við aðra eins og þú vilt láta koma fram við þig
Það er auðvelt að nota Netið til að særa annað fólk. Ljót skrif eða myndbirtingar af öðrum eru ofbeldi gagnvart öðrum og geta valdið mikilli vanlíðan. Þær valda vanlíðan hjá þeim sem verður fyrir því og þær valda líka vanlíðan hjá þeim sem setur slíkt á Netið. Mörgum líður illa og eru með samviskubit vegna þess að þeir hafa sært aðra. Þegar við setjum ljótt efni á Netið um einhvern annan er það opið fyrir alla og það er aldrei hægt að taka það aftur. Hugsum okkur því vel um áður en við segjum eitthvað eða setjum efni á Netið sem getur sært eða meitt aðra manneskju. Komum fram við aðra eins og við viljum láta koma fram við okkur.
3. Ekki taka þátt í neinu sem þú veist ekki hvað er
Það er nauðsynlegt að vita alltaf hvað maður er að gera þegar maður tekur þátt í einhverju á Netinu. Það getur verið hættulegt að vera í samskiptum við fólk sem maður þekkir ekki nema í gegn um Netið. Förum varlega þegar við gefum persónulegar upplýsingar um okkur á Netinu. Það getur valdið miklum vandræðum að setja upplýsingar um sig á Netið ef maður veit ekki hver fær upplýsingarnar. Margir hafa fengið vírus sem skemmt hefur tölvuna eða eru í miklum vandræðum með ruslpóst vegna þess að þeir hafa skráð sig inn á vefsíður sem þeir þekkja ekki og vita ekki hverjir halda úti.
Það er líka nauðsynlegt að athuga vel hvort hægt er að treysta upplýsingum sem fengnar eru af Netinu. Athugum hvaðan upplýsingarnar eru og hvort þær eru réttar áður en við notum þær.
4. Mundu að efni sem þú setur á Netið er öllum opið, alltaf
Það er ekkert einkalíf til á Netinu. Allt sem sett er þar inn er opið fyrir alla, alltaf. Ef við viljum ekki að allir sjái hvað við erum að segja eða gera skulum við ekki setja það á Netið. Hver sem er getur skoðað bloggsíður
og annað sem við setjum á Netið og auðvelt er að finna vefsíður. Hver sem
er getur líka náð í það efni sem við setjum á Netið og vistað það hjá sér.
Þess vegna þurfum við að hugsa okkur vel um áður en við setjum upplýsingar um okkur eða myndir af okkur eða öðrum á Netið. Þó við tökum þær út af vefsíðunum okkar getur hver sem er náð í þær meðan þær eru inni.
5. Þú berð ábyrgð á því sem þú segir og gerir á Netinu
Við berum ábyrgð á því sem við segjum og gerum. Það á við um Netið eins og allt annað. Þess vegna þurfum við að geta svarað fyrir allt sem við setjum þar inn. Hægt er að rekja tölvupóst og allar færslur sem settar eru inn á Netsíður. Það er ekki notaleg tilhugsun að þurfa að standa frammi fyrir foreldrum, skólastjórnendum, vinnuveitanda eða jafnvel lögreglunni og þurfa að svara fyrir eitthvað sem við hefðum ekki átt að setja á Netið. Munum líka að lögin í landinu gilda líka um það sem fólk gerir á Netinu.
Fésbókarsíðan ekki opinber | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
The Swindlers List - Video
10.1.2010 | 21:32
Swindlers List video 1/3
Swindlers List video 2/3
Swindlers List video 3/3
Fjármál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er mbl.is að auglýsa þetta aftur?
29.11.2009 | 19:22
Merkilegt að mbl.is er orðin einhver auglýsingastofa í fréttum sínum... Það er nú ekki meira en 2 vikur síðan að mbl.is sagði frá húsgögnum Spron til sölu og þá var það akkúrat sömu húsgögn enda vitum við það svosem öll. . Nú á að auglýsa þetta undir nafni frjálsa. Hvað næst ? Kaupþing selur húsgögn?
Eru bankarnir farnir að vera kennitöluflakkandi húsgagnasölur ?
Sérsmíðaður viðskiptavinabekkur til sölu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mjög spennandi sumar árið 2010
22.10.2009 | 18:19
Það verður spennandi að sjá hvað á eftir að gerast með metnaðarfullt lið ÍBV næsta sumar. Að vísu hafa útlendingar horfið af braut en sú staðreynd að Andri hafi framlengt og þeir Tryggvi og Ásgeir séu að koma "nýjir" inn hlýtur að fylla allavega það skarð sem skapaðist með brottför útlendingana.
Ég held að ÍBV sé að gera rétta hluti því ljóst er að gengismunur gerði það að verkum að íslenskir leikmenn eru að koma betur út fyrir liðið þessa stundina. En ef gengið lagast þá er bara aldrei að vita hvaða útlendingar koma í liðið.
Tryggvi: Spennandi tímar í Eyjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)