Enn og aftur
2.10.2009 | 10:49
Það á ekki af honum Gaua að ganga.
Erfitt hefur verið fyrir hann að festa sig í einhverju starfi þarna á Bretlandi jafnt sem á Íslandi. .
En alltaf bítur hann frá sér (einusinni bókstaflega)
Ég hef tröllatrú á honum sem þjálfara en spurningin ef hvort hann ráði við það á erlendri grundu.
Ferill hans er eftirfarandi
1987 ÍA Akranes Fyrsta ár hans sem þjálfara
19881990 KA Akureyri Íslandsmeistarar 1989
19911993 ÍA Akranes Tók við liðinu, fór upp um deild í fyrstu tilraun og unnu IA Íslandsmeistaratitilinn 1992-1996
19941995 KR ReykjavíkUndir hans stjórn unnu KR Bikarinn bæði árin. REKINN
1996 ÍA Akranes Tók aftur við liðinu og vann bæði deild og bikar
19971999 Iceland Þekkjum öll í hvaða sæti við vorum á styrkleikalistanum þarna og hvað hefur gerst síðan hann hætti.
19992002 Stoke City Vann framrúðubikarinn og er enn talinn til sigurstranglegustu þjálfa Stoke fyrr og síðar.
2002 Start Þarna er ekki mikið til að hrópa húrra yfir.
20032004 Barnsley Rekinn þarna
2005 Keflavík Þetta tímabil(eða ekki tímabil) er hlægilegt í alla staði
20052006 Notts County Sagði upp þarna eftir slappt gengi liðsins
20072008 ÍA Akranes Gekk ágetlega og endaði í 3 sæti en árið 2008 var stefnan fall og var hann rekinn. ÍA féll
20082009 Crewe Alexandra liðið féll á fyrsta ári og ekkert gengið í ár.. rekinn er niðurstaðan...
Eftir þessa samantekt held ég að við séum með þjálfara sem er sá sigursælasti á Íslandi fyrr og síðar en því miður ekki náð að fóta sig almennilega erlendis.
Guðjón rekinn frá Crewe | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Guðjón hefur nú bitið oftar frá sér en einu sinni...og þá meina ég bókstaflega. Það eru til mýmörg dæmi sem ekki hafa ratað í fréttirnar.
Erlingur (IP-tala skráð) 2.10.2009 kl. 11:37
Þetta lá í loftinu
Því hefur ekki staðið á gagnrýni (lúbarða) son hans á núverandi landsliðsþjálfara
Grímur (IP-tala skráð) 2.10.2009 kl. 11:46
Þessi upptalning hans sýnir það algjörlega svart á hvítu að hans aðferðir virka ekki í nútímaknattspyrnu. Hann kunni greinilega sitt fag fyrir 15 árum síðan en hefur einfaldlega ekki sýnt neitt í mörg ár.
ég veit samt ekki alveg hvað þú meinar með að hann sé sigurstranglegasti þjálfari íslands fyrr og síðar. Getur ekki verið að þú sért að meina sigursælasti þjálfari íslandsögunar?
Gísli (IP-tala skráð) 2.10.2009 kl. 13:11
Vanur maður hann Guðjón. Bjó hann þarna til kjúklingaskít úr kjúklingasalati eða komust bretar að því að hann er mágur Geirs Haarde ?
Stefán (IP-tala skráð) 2.10.2009 kl. 14:25
Gísli takk fyrir ábendinguna... á við fljótfærnisvandamál að etja :)
Stefán Þór Steindórsson, 2.10.2009 kl. 14:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.